StefaníaÓsk
BraceFaceStefanía Ósk
Og þá er komið að því, the moment we've all been waiting for, eftir viku, verð ég Stefanía Ósk komin með spangir á fínu beinu tennurnar mínar allt útaf því að tvær af heimskari tönnunum mínum þanna aftan í jaxla hverfinu ákváðu að fara í smá heimsreisu og koma svo til baka á kolvitlausum stað. Vítiskvalir, vítiskvalir, ég líð ekki svona meðverð á prímadonnunni henni MÉR. Sko ég neita og vil ekki láta pota einhverju stál drasli upp í mig, það er vont! Svo þurfti að taka mót af toönnunum ´minum náttúrulega og það var gert með því að stinga einhverju viðbjóðslegu mygluðu mynntu geli uppí kjaftin´n á mér og alveg niður í kok svo ég ældi næstum á góðu tannlæknakonuna sem sagði mer baaara að anda í gegnum munninn þetta tæki voða lítinn tíma, sem það gerði ekki! Ég vildi óska að ég gæti sagt að það versta væri yfir staðið en svo er ekki það versta á enn eftir að koma.. dumm dumm fylgist með!
-Stefanía Ósk
ValbókaritgerðStefanía Ósk
Spáin reyndist rétt, ég hef tekið aftur til starfa!Sit hér í mestu makindum í grænum viðbjóðslegum tölvustól í MH og brýt heilann yfir ömurlegri vabókaritgerð sem ég kem mér ekki til að klára. Komin með tvær síður og vantar eina heila, vandamálið er þó að ég hef ekkert meira um málefnið að segja. Og kennarinn minn hún Guðlaug þó hún sé góður kennari, er bara alveg hroðalegt skass við suma.. og rosalega smámunasöm og vill hafa hlutina nááááákvæmlega eftir sínu höfði. Svo ég er að berjast við stafsetningu og rétt málfar meðan samnemar mínir slappa af því flestir virðast löngu búnir eða komnir langt á leið(eða er simply bara alveg sama) með sína ritgerð. Meiri vitleysan! Jæja, það fer að nálgast í helgi.. miðvikudagur, fimmtudagur, föstudagur. Hugsa JÁKVÆTT! Mætti hérna uppí skóla klukkan tíu mínútur yfir átta bara til þess að mæta í tíma klukkan 12:40!! Og jú til að reyna að klára þennann horror fyrir klukkan hálf fjögur sem minnir mig á: Gleðilega hrekkjavöku (bandaríska sjúka fólk). Hrekkjavakan, hefð sem tíðkast ekki hér á landi er þó álitin hefð í augum sumra hér á Íslandi. Við höfum öskudaginn sem er lélegri útgáfa af hrekkjavöku. Um miðjann vetur í frosti og nístings kulda klæða þó sumir Íslendingar sig upp í allskonar nornabúninga og hrollvekju föt þann 30 október og hræða líftóruna úr fjölskyldu meðlimum, mér finnst það ekkert sniðugt. Við erum ekki amerísk þó stundum viljum við láta sem svo sé. Afhverju fá samt menntaskóla nemar ekki frí á öskudaginn? þvílíkt rip off!
Jæja 5 eða 4 man ekki alveg, vikur í prófin og það má segja að ég sé semí undirbúin.. prófunum líkur svo þann 14 des og þá er ég barasta komin í jólafrí! nja nja nja nja bú bú(á ykkur hin sem ekki farið í jólafrí 14 des) Og á döfinni er hin margumtalaða Danmerkurferð, jóla stemmning í Kaupmannahöfn, ekkert er meira spennandi fyrir mér akkúrat núna. Jæja ég ætla að snúa mér aftur að ógeðinu(valbókaritgerðinni) reyna að fá einhvern botn í þessarri botnleysu.
-Stefanía Ósk kveður.
Vangaveltur..Stefanía Ósk
Er hugsanleg að Stefanía Ósk snúi aftur?.. jah maður veit aldrei hvað gerist í náinni framtíð.. fylgist með..Undirrituð
-Unknown
Gosh..Stefanía Ósk
Goshhh! Of mikið að gera, skólinn byrjaður og allt í fullt.. smááá Pása!!Gert verður hlé á frekari framkvæmdum á þessarri síðu um óákveðinn tíma..
StefaníaÓsk ! ;*
::Jet - Move on::Stefanía Ósk
Me is back :DOg ég biðst innilegrar afsökunnar á fjarveru minni, en ástæðan er sú að ég er búin að vera uppi í bústað í Dölum alla helgina frá Fimmtudegi til Mánudags og þar var hvorki símasamband né nettenging :) En já, þar var ég aðalega að hoppa á trampólíni leggja óuppganganlegann kapal og labba með systur mína og Sóley niður á Eiríksstaði? að kaupa ís :) Annars þá er þessi dagur búinn að vera ansi viðburðar ríkur E´g fór í ræktina klukkan 8 í morgun, labbaði svo með Sögu sætu niður á INgó. og keypti ís handa henni, svo fór ég með Sögu og Sigurbjörgu niður á tjörn að gefa öndunum og að klifra í hljómskálagarðinum, svo á laugarveginn að kaupa "glingur" handa þeim :) svkísur! Svoooo fór ég til Unnar og Mömmu á Fjölnó þar sem þær voru að steikjast á sólbekkjum ;) fór með Hönnu Maríu litlu sætustu :D og Sigurbjörgu og Sögu og vinkonu Sigurbjargar á freyjugötu róló, svo heim svo aftur á róló svo heim og svooo aftur á róló þar sem ég hitti Birnu (nágranna minn sem ég passa fyrir) og svo fór ég heim með stelpurnar og gaf þeim að borða og svooo fylgdi ég vikonu Sigurbjargar og bróður hennar heim.. og svo fór ég sjálf í sólbað í litlu sólinni sem var eftir, og nú er ég heima að svæfa sögu og svo vfer ég aftur á Fjölnó að borða og svo horfa á s´pólu :P Þar hafið þið þá það.. mjög svo spennandi, ég er búin að vera á kafi í börnum í allann dag :D Og hún Hanna María sætasta frænkan mín, er eina barnið hingað til sem getur sagt nafnið mitt alveg rétt.. og hún er bara 1 árs :O undrabarn :) Jæææja :/ Það er nú ekki frá mikið meira að segja..? Annars ætla ég að vera duglegri að blogga núna, skólinn að byrja og svona :) Jæja, farin að borða sumar salat :D vei mér..
Kv.Sumar sumar
P.S: Það er búið að vera GEÐVEIKT veður í dag.. tókuð þþið eftir því?
::This is my world - Darius Rucker::Stefanía Ósk
Jæja það var mikið að mín fór að versla!Sooo, Stefanía fór á Laugaveginn í dag og keypti sér allskonar stelpu hluti :D Hér koma þeir svo:
*Grifflur úr Oni (bleikar og hvítar)
*Bleik hálsfestu úr skarthúsinu
*Gloss úr apótekinu
*Bleik armbönd úr Oni
*Fantasy body lotion (umbúðrinar eru bleikar)
*Hvítt og silfrað hárband úr skarthúsinu
(Ég er hrædd um að nú sé ég óstöðvandi , þegar við kemur að versla.. ég get aldrei hætt ég get svo svari ðfyrir það !)
Semsagt verslaði hún bara skartgripi og annig vörur, seinna koma fatakaupin, já seinna segi ég. Annars var þetta mjör svo skemmtileg ferð , ég með mér. Hljómar kannski ofboðslega einmanna en ég var það ekki, þetta er í rauninni mikið skemmtilegra en það hljómar, bara einn með hugsunum sínum. Ekkert að bera sig saman við aðra eða spyrjandi alla aðra álits, mjög æðislegt. Plús það var rigning, ég elska rigningu.. (stundum)
Oooog, í nótt kemur Hruslan heim :D Og þá verður líf mitt aftur sem fyrr. Hún var víst stödd í París í gærkveldi, fór í Eiffel turninn(bölvuð) og eyddi svo nóttinni á einhverju mega hóteli rétt hjá Louvre safninu ein.. (bölvuð) Ég fyrirgef henni aldrei.. ! Annars var bara allt gott að frétta frá henni :)
Well, I'm gonna pack it in ;)
Kv. StefaníaÓsk
::I found a reason - Cat Power::Stefanía Ósk
Stelpur ! Ég er að lesa mest frelsandi bók sem ég hef á ævi minni lesið ! Hann er ekki nógu skotinn í þér ! Ef ég hefði átt þessa bók fyrir ári, tvem árum, hálfu ári, nokkrum mánuðum hefði ég aldrei, haft fyrir því að eyða tíma í alla helvítis dónana sem ég hef veirð með gegnum ævina ! Sko.. Ég lagði frá mér bókina þegar ég var vel hálfnuð me hana og byrjaði hægt og rólega að fara í gegnum öll mín fyrrverandi sambönd og hægt og rólega áttaði mig á því.. að þetta var tíma eyðsl algjör tíma eyðsla, allir strákarnir sem ég hef eytt tárunum mínum íeða setið tímum saman og beðið við síman eftir þeim, hann er bara ekki nógu skotinn í mér ! hah :D Og hin skiptin, var ég bara ekki nógu skotin! Þessi bók er nákvæmt líkan af heilabúi karlmannsinns. Það eru engar afsakanir, það er bara skot eða ekki skot ! Ég vil grípa tækifærði hé rog benda ÖLLUM (í sambandi eða ekki í sambandi) stelpum á þessa bók ! Eins og Oprah Winfrey segir sjálf aftan á bókinni "Þessi bók ætti að vera á náttobrði hverrar einustu konu" Orð að sönnu.. lesið þetta í alvöru ! Þessi bók er ótrúleg, fyndin og skemmtileg líka !"Hann er ekki nógu skotinn í þér"
Greg Behrendt & Liz Tuccillo
Kv. StefaníaÓsk
::The Smiths - Asleep::Stefanía Ósk
Jæja, þetta er nú ekki búin að vera neitt sérstök helgi, aðalega bara hangs.. Leigði spólu á föstudags kvöldinu, fun with Dick and Jane, hún var ágæt.. fór að sofa um 3 leitið ( var að passa ) Laugardags kvöldið.. aftur sama, leigði spólu með systur minni, Öskubusku fyrir Sögu og Pride and Predjudice fyrir mig :) er að lesa bókin, algerlega mögnuð ! mæli eindregið með bæði þáttunum, myndinni og bókinni ! OG í dag.. jah, ég er ekki enn komin úr náttfötunum þannig að svipað ! Horfði á Cheaper by the Dozen með mömmu ooog pabba ooog Sögu, hún var aaaalger martröð get ekki sagt að ég mæli með henni :) En svo horfðum við pabbi á The Hills Have Eyes og ég get svo svarið fyrir það, við migum næstum á okkur af hræðslu ! Þetta er ógnvekjandi mynd 0_o og svona líka Viðbjóðsleg!! Igh, langar ekki að horfa á hana aftur ! Annars ætla mér að sjá Hostel bráðlega, einhver sem hefur áhuga á að sjá hana með mér? sjéns að ég horfi á hana ein :D Eeeen, á morgun fæ ég kortið mitt aftur :) jibbí.. og þá ætlaég mér að GERA eitthvað, þreytt á að hanga. ágætt samt að taka eina svona helgi.. :) En ekki meira en eina í röð allavega..Þá er þetta svona pretty much komið, í bili, mjöööög spennandi?
::The Smiths - Asleep::
::Sorglegt::
Sing me to sleep
Sing me to sleep
I'm tired and I
I want to go to bed
Sing me to sleep
Sing me to sleep
And then leave me alone
Don't try to wake me in the morning
Cause I will be gone
Don't feel bad for me
I want you to know
Deep in the cell of my heart
will feel so glad go
Sing me to sleep
Sing me to sleep
I don't want to wake up on my own annymore
Sing to me
Sing to me
I don't want to wake up on my own anymore
Don't feel bad for me
I want you to know
Deep in the cell of my heart
I really want to go
There is another world
There is a better world
Well, there must be
Well, there must be
Well. there must be
Well, there must be
Well....
Bye bye
Bye bye
bye....
Takk fyrir mig
StefaníaÓsk <3
::Teddy Geiger - She's on my mind::Stefanía Ósk
Hressleiki ? Vaknaði klukkan 11, skellti mér út að hlaupa, hljóp uppá Fossagötu til pabba og hjálpaði honum að bera hluti og lá í grasinu.. lá meira í graisinu.. starði á sólina sem aldrei kom nema í nokkrar sekúndur.. mjög skemmtilegt.. Fór með pabba á haugana, hljóp aftur heim, horfði á Fun with Dick and Jane.. og borðaði tómat..So how was your day?
Annars er ekkert nýtt að frétta frá mér.. búin að borga skólagjöld og alles, fæ nýja kortið mitt á mánudaginn og ætla að skell mér í Oni að kaupa mér flott flott sem kemur í ljós :D Annars ætla ég að nota tækifærði hérna og spyra ykkur kæru lesendur: Á einhver ykkar Teddy Geiger - my inner pain lagið?! Ég er að verða brjáluð, finn það hvergi og mig langar svo mikið mikið í þa !Ég kæri hann! Ojæja, ætli ég fái mér ekki bara epli.. I'll let the song find me.. :/ MiSHEPPNUUUÐ.. allavega, heyrumst!
Kv.StefaníaíaíaíaíaSk